Júní
Naglaboðhlaup
Naglaboðhlaup
17. júní 2009 í Nesjum
Mynd 5 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

24.06.2009 Júní

17. júní í Nesjum

Eins og undanfarin ár hélt Ungmennafélagið Máni í Nesjum 17. júní hátíðlegan.  Hátíðahöldin hafa þó aldrei verið mjög formleg og alltaf lítið um ræðuhöld.  Á því var engin undantekning þetta árið.  Dagurinn hófst í nokkurri úrkomu um klukkan 13:30 við heitu pottana í Hoffelli, þar sem stigið var um borð í sirkusvagninn sívinsæla sem ferjaði hátíðargesti á áfangastað.  Ekið var inn að Geitafelli þaðan sem gengið var upp að hinu mikilfenglega Efstafellsgili.  Þar var áð í um hálfa klukkustund og náttúran skoðuð sem og útsýnið.  Þegar allir höfðu fengið sinn ráðlagða dagskammt af útsýni héldu gestir aftur niður í Geitafell þar sem farið var í leiki og borðaðar grillaðar pylsur.  Að dagskrá lokinni hélt víkingahljómsveitin Krauka tónleika, en meðlimir þeirrar hljómsveitar spila af fingrum fram á hljóðfæri sem eru smíðuð eftir hljóðfærum frá víkingatímanum í bland við nútímalegri hljóðfæri. 

Þegar allir höfðu fengið nægju sína af pylsum, leikjum og almennri útiveru stigu gestir aftur í  sirkusvagninn sem ferjaði þá til baka að bílunum.  Allir voru sammála um að dagurinn hafði heppnast vel þrátt fyrir misjafnt veður. 

Stjórn Ungmennafélagsins Mána vill koma á framfæri þökkum til allra sem hjálpuðu til við að gera daginn eins skemmtilegan og hann varð og þá sérstaklega þeim Ingibjörgu og Þrúðmari í Hoffelli fyrir leiðsögn og almenna hjálpsemi.

f.h. Umf Mána

Sigurður Óskar Jónsson, ritari.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica