Glófaxi ríður á vaðið
Partý og gleðidiskur Glófaxamanna „Ríða á vaðið“ erkominn út og af því tilefni verða útgáfutónleikar laugardaginn 27. júní kl. 21 í Sindrabæ. Einnig verður sérstök uppákoma á Jöklasýningunni sama dag kl. 16 sem mikil leynd hvílir yfir!
Aðgangseyrir á tónleikana er kr. 1500.-.
Lögin á diskinum eru öll kröftug, þétt og skemmtileg og eru allt ferðasögur úr hestaferðum okkar Glófaxamanna. Hljómsveitin Undur var stofnuð gagngert til flutnings á þessari mögnuðu tónlist, spilar og syngur öll lögin inn á diskinn. Fjölmargir komu að gerð disksins og má til gamans geta að þrír ættliðir eiga efni á disknum, Hrönn Jónsdóttir, Jonni sonur hennar og Elvar Bragi sonur hans. Í hljómsveitinni eru: Axel Jónsson, Björn V. Jónsson, Hallur Sigurðsson, Örn Þór Þorbjörnsson, Elvar Bragi Kristjónsson, Eymundur Ragnarsson, Kristjón Elvarsson, Einar Kristjánsson, Heiðar Sigursson, Sólveig Morávek, Sigurður Mar Halldórsson og Friðrik Jónsson.
Diskurinn er seldur í Martölvunni, hjá Glófaxamönnum og í öllum betri hljómplötuverslunum Reykjavíkur
Útreiðarfélagið Glófaxi er félagsskapur sem var stofnaður seint á síðustu öld á Hornafirði og á um þessar mundir 10 ára afmæli. Félagsmenn eru allir Hornfirðingar og eru bara á hestum fyrir lengra komna sem að sjálfsögðu eru Hornfirskt ættaðir hestar. Þeir vilja hafa skemmtun og gleði í kringum sig og gera grín að sjálfum sér og öðrum en þó aðallega að sjálfum sér.
Útreiðarfélagið Glófaxi hefur riðið á öll Landsmót hestamanna á þessari öld. Því eru Glófaxamenn orðnir stór hluti af Landsmótum eins og Landsmótsgestir hafa orðið varir við. Glófaxamenn vilja tileinka diskinn öllum hestamönnum sem orðið hafa á vegi þeirra á ferðum Glófaxamanna, vítt og breitt um landið.
Hér ríða hetjur um héruð!
Útreiðarfélagið Glófaxi.





Skrifa athugasemd