Á ferð og flugi
Margt hefur verið að gerast hjá Ferðafélagi Austur-Skaftfellinga að undanförnu.Margar ferðir í gangi og hefur mæting verið góð. Í lok maí var farið út í Papey og 10 dögum seinna um Haukafellsheiði, 17. júní var svo vinnuferð í Kollumúla sem tókst með ágætum og sannaðist þar máltækið "Margar hendur vinna létt verk". Í gær, 22. júní, kom 15 manna hópur af Lónsöræfum úr ferðinni okkar Náttúruperlur í A- Skaftafellssýslu. Ferðin hófst á föstudaginn með ferð á Humarkló, síðan var haldið inn á Lónsöræf og dvalið þar í 3 daga.Veðrið lék við ferðalangana og skörtuðu fjöll og jöklar sínu fegursta. Í dag þriðjud. 23. júní er svo óvissuferð á Jónsmessunni. Hún verður með breyttu sniði í ár, fyrst verður létt og skemmtileg ferð með fræðslu, kakói og kleinum og ýmsum uppákomum og hefst sá hluti ferðarinnar kl. 20. Síðan um kl. 22 hefst 4 - 5 tíma,fremur létt miðnæturganga og mun Ragna Pétursdóttir leiða þann hóp sem vill njóta fegurðar íslensku sumarnæturinnar. Nánari upplýsingar á Skjávarpi.
Að lokum viljum við í ferðafélaginu minna á að skráning er hafin í Jeppa og fjölskylduferðina á Úthérað 17. til 19. júlí. Nánar auglýst á Skjávarpi. Allir velkomnir. Hlökkum til að sjá ykkur.
Ferðanefndin





Skrifa athugasemd