Vinir Vatnajökuls koma saman í fyrsta sinn og fagna stofnun Hollvinasamtaka Vatnajökulsþjóðgarðs.
Ráðherra opnar vef samtakanna vinirvatnajokuls.is
Fjölmennt var á samkomu til að fagna stofnun Vina Vatnajökuls sem haldin var í Öskju, Náttúrufræðihúsi HÍ 21.júní. Katrín Júlíusdóttir ráðherra ferðamála, byggðamála, þróunar og landkynningar opnaði vef samtakanna á samkomunni. Katrín sagði við það tækifæri að ferðaþjónusta og hverskonar starfsemi er tengdist náttúru Íslands væri ein af auðlindum okkar sem gæti rennt stoðum undir uppbyggingu efnahags landsins. Ráðherra lýsti yfir ánægju með stofnun Vina Vatnajökuls og óskaði samtökunum alls hins besta.
Kristín Ingólfsdóttir formaður stjórnar Vina Vatnajökuls og Þórður H. Ólafsson framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs undirrituðu viljayfirlýsingu um samstarf á milli samtakanna og þjóðgarðsins.
Kristín skýrði frá því að fyrsta verk Hollvinasamtakanna yrði að safna fé í styrktarsjóð til styrktar rannsóknum, kynningar- og fræðslustarfi. Í því sambandi munu Vinir Vatnajökuls ekki síður leita út fyrir landsteinana, til umhverfis- og náttúrusjóða sem fyrirtæki og samtök hafa komið á fót. "Með sameiginlegu átaki stefnum við að því að láta muna verulega um Vini Vatnajökuls". Samtökin stefna að því að auglýsa eftir fyrstu umsóknum um styrki í september. Kristín þakkaði einnig þeim fjölmörgu einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og félögum sem komið hafa að stofnun samtakanna en aðdraganda að stofnun Vina Vatnajökuls má rekja til ársins 2007 er áhugi kviknaði á meðal heimamanna í aðliggjandi sveitarfélögum um stofnun félags og styrktarsjóðs til stuðnings góðum málefnum er varða Vatnajökulsþjóðgarðs.
Hægt er að skrá sig í samtökin og gerast Vinur Vatnajökuls í gegnum vef samtakanna: vinirvatnajokuls.is




Skrifa athugasemd