Júní
17. júní 2009
Frá 17. júní hátíðarhöldum (úr myndasafni) 
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

20.06.2009 Júní

17 júní á Höfn

Dagurinn byrjaði að töluverðri rigningu, en um hádegi létti til og má segja að Hornfirðingar hafi svona heilt yfir fengið gott þjóðhátíðarveður. Dagskráin hófst með því að boðið var upp á ferð út á Melatanga kl 10 og stóð það fram á hádegi, en kl. 14 var svo farið í hina árlegu skrúðgöngu þar sem gengið var frá Vesturbrautarplaninu og á Hóteltúnið Lúðrasveit Hornafjarða fór fyrir fylkingunni eins og undanfarin ár.  Þegar á hóteltúnið var komið lék sveitin nokkur lög. Hátíðarræða dagsins var flutt af Björgu Erlingsdóttur, má nálgast ræðuna hér. Þórdís Imsland flutti tvö lög við undirleik Elvars Braga og það leynir sér ekki að Þórdís er bráðefnileg söngkona. Fjallkona dagsins var Sandra Rán Ásgrímsdóttir og flutti lóð eftir Huldu (Unnur Benediktsdóttur Bjarklind)  sem heitir „Hver á sér fegra föðurland“. Þá heiðraði Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir, fyrir hönd USÚ, íþóttamenn og voru eftirtaldir heiðraðir.

 

Blakmaður USÚ 2008 Kolbrún Birna Ólafsdóttir
Hestamaður ÚSÚ 2008  Bjarney Unnsteinsdóttir
Knattspyrnukona USÚ 2008 Iðunn Tara Ásgrímsdóttir
Knattspyrnumaður USÚ 2008 Alex Freyr Hilmarsson
Dansari USÚ 2008 Anna Kristín
Körfuboltamaður USÚ 2008 Óskar Þór Ingvarsson
Fimleikamaður USÚ 2008 Hanna Guðrún Kolbeins
Frjálsíþróttamaður USÚ 2008 Sveinbjörg Zophoníasdóttir sem jafnframt var kjörin íþróttamaður USÚ 2008 fyrir afrek sín.

Svo lauk dagskránni með fimleikasýning undir öruggri stjórn Kristinn Þórs Guðlaugssonar þjálfara.

Kynnir á þessari hátíð var Þorvarður Árnason (Þorri)

Þegar að þessu lauk  voru svo grillaðar pylsur og blásin upp leiktæki og lauk svo dagskrá um kl 17.

Um kvöldið var svo fjölskyldudansleikur í íþróttahúsinu þar sem strákarnir í MINSK héldu uppi fjörinu í rúma 2 tíma.  Að vanda var það UMF.Sindri sem stóð að hátíðarhöldunum

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica