Upprennandi listamaður
Fékk inngöngu í Pratt listaháskólann í New York
Það er alltaf gaman að heyra af afrekum Hornfirðinga um allan heim. Ein af þeim er Jóhanna Guðrún Karlsdóttir sem er dóttir Karls hans Jóns Inga og Nönnu Láru á Ránarslóðinni. Hún er að klára High School í Bandaríkjunum eftir tvær vikur og fékk inngöngu í Pratt Institute í New York í haust. Pratt er einn virtasti listaháskóli í Bandaríkjunum, og mjög erfitt að fá inngöngu. Hún gerði sér lítið fyrir og fékk “Early Acceptance” í desember; almennar umsóknir eru teknar inn í febrúar en nemar sem skara fram úr og vilja einn skóla yfir aðra sækja oft um snemma og ef hafnað nota þá almennu umsóknina seinna til að sækja um í aðra skóla. Ég held að þetta árið hafi um 6,000 manns sótt um inngöngu í Pratt en aðeins um 500 komust að. Hún fer inn í Stafrænu Listadeildina „Digital Arts“ í Pratt og hefur mikinn áhuga á að fara í „Game Art Design“ en það er hönnun á þrívíddar grafík í tölvuleikjum og/eða simulations; einnig hefur hún mikinn áhuga á Animation.
Hér á eftir er tveir tenglar á verk eftir hana.
Fyrsta slóðin er á verkefni sem hún gerði í lokaprófum í vikunni – hún “tók upp” meðan hún teiknaði sjálfsmynd á tölvunni og tók svo upptökuna og pressaði margra klukkutíma vinnu niður í mínútur og setti við músík, sjá hér.
Hin slóðin er á vefsíðu þar sem hún hefur sett upp talsvert af myndum sem hún hefur gert – þetta er blanda af teikningum, málverkum, tölvuteikningum og ljósmyndum og spannar nokkurn tíma og sýnir þannig hvernig list hennar hefur þróast síðustu 2– 3 árin, sjá hér.





Skrifa athugasemd