Júní
Öræfajökull og Jökulsárlón með merki Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Sveitarfélagið Hornafjörður
Öræfajökull og Jökulsárlón með merki Sveitarfélagsins Hornafjarðar

15.06.2009 Júní

Bókun frá Bæjarstjórn Hornafjarðar

Bæjarstjórn Hornafjarðar lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þeirra óvissu kominn er upp í rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi á Hornfirði. Nú þegar hefur ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að fara svokallaða fyrningarleið á úthlutuðum kvóta valdið fyrirtækjum skaða og sett rekstur þeirra í uppnám. Auk sjávarútvegsfyrirtækja hefur þetta mikil áhrif á nýsköpun og þau fyrirtæki sem hafa atvinnu af þjónustu við sjávarútveginn.

Því vill bæjarstjórn Hornafjarðar skora á ríkisvaldið að falla nú þegar frá ákvörðunum um fyrningu aflaheimilda. Sjávarútvegurinn er sú undirstöðuatvinnugrein sem aflar þjóðinni stóran hluta gjaldeyristekna og við núverandi ástand í þjóðfélaginu er það afar varhugavert að setja þessa atvinnugrein í algjört uppnám eins og nú stefnir í. 

Jafnframt er mikilvægt að komið sé í veg fyrir upplausnarástand í sjávarútvegi við hverjar alþingiskosningar. Því hvetur Bæjarstjórn Hornafjarðar til þess að hafin verði endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu með það að markmiði

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica