Dagsferðir til Hornafjarðar
Við höfum verið að láta okkur detta í hug að vera með stélhjólsvél þarna á fjörusandinum nokkrar vikur yfir sumarið og bjóða uppá útsýnisflug segir Hörður Guðmundsson flugstjóri og eigandi flugfélagsins Ernir þegar fréttamaður vefsins spurði hann um notkun á gömlu flugbrautinni á Suðurfjörum en hann lenti þar flugvél sinni í síðustu viku.
Við myndum bjóða uppá hálftíma til þriggja kortera flugferðir yfir nágrennið svo sem flug suður að Jökulsárlóni, upp á jökul og yfir svæðið eftir hvað hentaði hverju sinni, hér er af svo mörgu að taka hvað útsýni varðar. Þessi vél sem ég hef í huga er skráð fyrir sex manns en er þægileg fyrir 3-4 farþega í svona útsýnisflug og fyrir þá sem vilja taka myndir.
Mér líst alveg þokkalega vel á sumarið og mér sýnist vera vaxandi umferð þarna austur og góð eftirspurn í dagsferðir sem við erum að bjóða uppá til Hornafjarðar. Þessar dagsferðir, sem eru nær eingöngu keyptar af útlendingum, eru unnar og útbúnar í samvinnu við ferðaþjónustuaðila þarna fyrir austan. Boðið er upp á ferðirnar frá Reykjavík og þar er innifalið flug og tveir pakkar sem valið er um , annar er ferð uppá jökul og suður að Jökulsárlón og sigling á lóninu. Síðan er það fjöruferð á fjórhjólum þar sem farið er um Suðurfjörur og út í Hvanney þar sem Hornafjarðar ós blasir við,einnig er farið inn að heitu laugunum í Hoffelli.
Þessir pakkar eru einnig í samvinnu við hótel og gististaði á svæðinu og við bjóðum líka þann möguleika að taka bílaleigubíl aðra leiðina og þeir sem það vilja geta fengið kort með áhugaverðum viðkomustöðum. Þessir hópar sem við höfum farið með undanfarna daga eru alveg óskaplega ánægðir með þessar dagsferðir og alla tilhögun. Þetta er alveg rjóminn af þessum ferðum okkar og fólkið þarna fyrir austan er líka mjög ánægt með þetta og samstarf okkar gengur afskaplega vel.
Mér finnst þetta stórkostlegt svæði til að bjóða ferðir á og góð samhæfing þessara aðila sem að ferðunum koma og við erum bjartsýn á framtíðina segir Hörður að lokum




Skrifa athugasemd