Júní
Handan við Hornið
Handan við Hornið

18.06.2009 Júní

Handan við Hornið á SkjáVarpinu í kvöld

Þátturinn Handan við Hornið sem sýna átti fyrir viku verður sýndur á Skjávarpi í kvöld kl. 20. Hver man ekki eftir sjónvarpsþáttunum vinsælu, Mastrið, sem sýndir voru á SkjáVarpinu á sínum tíma? Þessir þættir erum með svipuðu sniði, en þar leika þeir Ólafur Albert Sævarsson, Ásgrímur Arason, Óli Kristján Benediktsson og Hörður Þórhallsson á alls oddi.

Þættirnir bera nafnið Handan við Hornið og verða sýndir með tveggja vikna millibili í allt sumar og verða endursýndir reglulega. Efni þáttanna er fjölbreytilegt og skemmtilegt, en þar er meðal annars stiklað á stóru á því sem gerst hefur hér í Ríki Vatnajökuls, auk þess sem sýndir verða leiknir þættir af ýmsu tagi sem þeir hafa samið.

Í þessum fyrsta þætti koma þeir félagar til með að sýna svipmyndir frá Sjómannadeginum sem nú var að líða hjá. Auk þess mun góður gestur kíkja í heimsókn, ýmsir leiknir þættir líta dagsins ljós og íþróttafréttir verða á sínum stað.

Þátturinn verður sýndur á SkjáVarpinu í kvöld kl. 20:00 fimmtudaginn 18. júní. Þættirnir verða á fimmtudagskvöldum og verða auglýstir á SkjáVarpi.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica