Júní
Veraldarvinir á Suðurfjörum
Fyrir stuttu komu átta sjálfboðaliðar frá Veraldarvinum og unnu í átta daga við að hreinsa burt allt drasl og spýtur af svæðinu við Melatanga og úr fjörunni. Þetta eru alveg harðduglegir krakkar og skiluðu sínu verki frábærlega vel segir Haukur Sveinbjörnsson eigandi Fjöruferða, en þetta er það svæði sem hann fer með viðskiptavini sína um hvort heldur er á fjórhjólum eða á tveim jafnfljótum Einnig vann þessi hópur í 3 daga við flugbrautina þarna og eins og við hreinsunina unnu þau sitt verk alveg sérlega vel.
Afraksturinn af hreinsun svæðisins má sjá á myndinni, heljarstór spýtnahaugur og fullt húsið af allskonar rusli.




Skrifa athugasemd