Má bjóða þér að kaupa hlutafé !
Ákveðið er að auka hlutafé í Kaupfélaghúsinu ehf.og hefur þegar verið auglýst eftir nýjum hluthöfum.
Núverandi hlutafar eru níu talsins og við viljum gjarnan stækka hópinn og gefa fleirum kost að taka þátt í skemmtilegu verkefni segir Hermann Hanson. Núna þegar framkvæmdin er komin svona langt þarf að leggja meira fé í húsið og það þarf ekki að miðast við neinar stórupphæðir að taka þátt í þessu með okkur.
Við gerum ekki ráð fyrir skyndigróða og heldur ekki miklum arðgreiðslum,
Hlutafjáreign í félaginu er hinsvegar tvímælalaust áhugaverð og ánægjuleg og litlar líkur á því að hún tapist í gjaldþroti.
Hermann segir að viðbrögð við auglýsing eftir nýjum hluthöfum séu jákvæð og vonandi komi enn fleiri í hópinn.
Ykkur sem hafið áhuga er bent á að hafa samband við Hermann í síma: 470-8802 eða 478-1181, Ingólf í síma 892-0920 eða Svein í síma 869-2076





Skrifa athugasemd