Opnaði með kaffihlaðborði kaupmannshjónanna
Nú um helgina opnaði nýtt kaffihús hér á Höfn, Café Tulinius og er það til húsa að Hafnarbraut 2, í Kaupfélagshúsinu. Miklar endurbætur hafa átt sér stað á húsinu og er orðinn mikill bæjarprýði af því. Eru það þau hjónin Gauti Árnason og Ragnheiður Rafnsdóttir sem reka kaffihúsið.
Að sögn þeirra hjóna er það mikill heiður að fá að starfa í þessu húsi, sem hefur svona mikla sögu og sál. En upphaf byggðar hér á Höfn má rekja til þessa að þetta hús var reist við Hafnarvíkina og verslun hófst á Höfn
Café Tulinius opnaði kl 14.00 á laugardaginn með kaffihlaðborði kaupmannshjónanna og mun það einnig vera í dag, sjómannadag.
Eftir helgina tekur svo við hefðbundinn opnar-tími frá kl 11.00 og til 21.00. Þá verða í boði almennar kaffiveitingar, heimabakaðar tertur og kaffibrauð.





Skrifa athugasemd