Sjómannalagakeppni Rásar 2 og Hátíðar hafsins 2009
Hornfirskt lag í úrslitum
Sjómannadagurinn nálgast og nú er komið að úrslitastundu í Sjómannalagakeppni Rásar 2 og Hátíðar hafsins. Í ár er hornfirskt lag í úrslitum "Ég vil helst ekki fara í land" eftir Heiðar Sigurðsson. Hvetjum við Hornfirðinga til að taka þátt í kosningunni. Hægt er að hlusta á lögin á ruv.is og kjósa ykkar uppáhalds sjómannalag til hádegis föstudaginn 5. júní. Úrslitin verða svo tilkynnt í Popplandinu milli klukkan 3 og 4 sama dag
Lögin sem eru í úrslitum eru:
Dossbaradjamm: Á bryggjunni stend ég og horfi
ðe ploters: Hrogn og lifur
Guðmundur Haukur Jónsson: Vertíðarvolkið
Heiðar Sigurðsson: Ég vil helst ekki fara í land
Sniglabandið og Skapti Ólafsson: Sófasjómaðurinn
Sveinbjörn Oddsson: Sjómenn þið eigið daginn
Sverrir Garðarsson: Sægreifinn
Sæljónin: Stormurinn æðir
Tríóið Höfrungur: Lífið á sjó
Unknown artist: Þín augu
Höfundar sigurlagsins fá að launum 100 bestu plötur Íslandssögunnar, gómsæta sjávarrétti og fleiri glæsilega vinninga. Sigurlagið verður svo flutt á Hátíð hafsins við Reykjavíkurhöfn, Sjómannadagshelgina 6.-7. júní og mun væntanlega hljóma ótt og títt í útvarpi allra landsmanna í allt sumar.
Sjómannalag ársins 2008 var Faðmurinn eftir Þröst Sigtryggsson og Kristján Hreinsson í flutningi Ragnars Bjarnasonar, en árið áður voru það Ljótu hálfvitarnir sem sigruðu með lagið sitt Sonur hafsins.





Skrifa athugasemd