OA fundir á Höfn
Hefur þú reynt mörg líkamsræktarátök og megrunarkúra en ferð alltaf í sama farið?
OA hefur lausn fyrir þig! Vertu velkomin á fundi hjá okkur. Vel er tekið á móti nýliðum.
Matarfíkn getur verið stórt vandamál í lífi fólks. OA samtökin hafa lausn við þessu vandamáli sem byggir á 12 sporakerfi AA samtakanna. OA félagar eru karlar og konur á öllum aldri um allan heim sem eiga sér þá ósk að halda sér frá matarfíkn og vilja bera boðskap samtakanna um bata áfram til þeirra sem enn þjást.
OA er ekki megrunarklúbbur og setur engin skilyrði um þyngdartap. Með því að viðurkenna vanmátt okkar gagnvart mat, og að kasta frá sér þeirri hugsun að maður þurfi á "viljastyrk" að halda til að stjórna áti sínu, verður maður fær um að halda sig frá ofáti - einn dag í einu.
Fundirnir eru á þriðjudagskvöldum kl. 19:30 í húsnæði Rauða Krossins að Víkurbraut 2 (ath. gengið inn baka til).
Fyrsti fundurinn, sem jafnframt er kynningarfundur, verður þriðjudaginn 2.júní.
Þeir sem vilja kynna sér starfsemi OA betur er bent á heimasíðuna www.oa.is





Skrifa athugasemd