Maí
"Iglue" pappírslampar
Verk Jóns Björnssonar
Mynd 7 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

28.05.2009 Maí

Borð og listmunir úr fjörusandi

Hornfirðingurinn Jón Björnsson, uppalinn í Hlíðartúninu á Höfn, hefur vakið mikla athygli fyrir listaverk sem hann vinnur úr venjulegum dökkum íslenskum fjörusandi. Jón stundaði nám í iðnhönnun í Hollandi og útskrifaðist sl. haust.  Hann hefur nú þegar tekið þátt í sýningum í New York, á Ítalíu, Kjarvalsstöðum og nýlega var hann beðinn um muni á sýningu sem verður í Smáranum í Kópavogi. Á Ítalíu sýnir Jón borðstofuborð sem er 170x90cm og gert úr fjörusandi.  Það er útskriftarverkefni Jóns, er um 100 kg á þyngd, og hefur víða vakið athygli.

Jón hlaut nýlega styrk úr Hönnunarsjóði Áróru og segir hann að það geri honum kleift að vinna áfram með sand-blómavasana eins og þá sem sýndir eru á Kjarvalsstöðum og koma þeim á markað. Einnig þarf að breyta framleiðsluferlinuog nota trémót í stað einnota pappírsmóta. Jón er búinn að fá aðstöðu  í Miklagarði og er að koma þar upp vinnu og framleiðsluaðstöðu og vonast hann til að geta opnað þar listverkasmiðjusína í byrjun júní.

Á heimasíðu Jóns, bjoss.com, er hægt að fræðast frekar um hönnun hans og verk.

Nánar verður sagt frá Jóni og starfsemi hans þegar hann opnar í Miklagarði en þar verður margt óvenjulegt að sjá og áhugamálin fjölbreytt og áhugaverð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica