Maí
Vinningshafar Suðurlandsborgarinn 2009
Vinningshafar Suðurlandsborgarinn 2009
Jón Sölvi Ólafsson, Elín Guðmundsóttir og Bjarki Hilmarsson. Á myndina vantar Hjördísi Þorfinnsdóttur
Mynd 1 af 3
1 2 3

27.05.2009 Maí

Suðurlandsborgarinn 2009

Keppni um besta Sunnlenska borgarann

Keppnin Suðurlandsborgarinn fór fram  laugardaginn 23. maí s.l. sem hluti af “Vor í Árborg“ að Gónhól á Eyrarbakka. Í öðru sæti lenti Lambaborgarinn en hann bjó til Jón Sölvi Ólafsson  „Kokkur“ sem rekur hér skyndibitastaðinn Kokkinn. Keppti hann fyrir Hótel Geirland. Lambaborgarinn vann einnig titilinn Sunnlenskasti borgarinn.

Til leiks voru skráðir 7 borgara:
• Smáborgarinn
• Lambahamborgari
• Saltfisborgari
• Algjör rófa
• Tungnasvalur
• Suðurlandsborgari með Skjálfta
• Gónhólsborgarinn

Dómnefndin var skipuð Tómas Tómassyni Búllukóngi, Ísólfi Gylfa Pálmasyni ríkiskokki no 1 og sveitastjóra  á Flúðum og Sverri Halldórsyni matreiðslumeistara.
Smakkað var blint og var virkilega gaman að upplifa frjótt hugmyndarflug þáttakenda og árræði í að prófa eitthvað nýtt.
Frumlegasti borgarinn er Algjör rófa, höfundar Elín Guðmundsdóttir og Hjördís Þorfinnsdóttir.
Sunnlenskasti borgarinn er Lambahamborgarinn,  höfundur Jón Sölvi Ólafsson sem keppti fyrir Erlu á Hótel Geirlandi

3. sæti er Suðurlandsborgari með Skjálfta höfundur Bjarki Hilmarsson yfirmatreiðslumeistari á Hótel Geysi
2. sæti er Lambahamborgarinn höfundur Jón Sölvi Ólafsson
1. sæti er Tungnasvalur höfundur Bjarki Hilmarsson

Frétt af freisting.is

Óskum við Jóni Sölva til hamingju með árangurinn!

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica