Maí
Sigurður Ingi Friðleifsson
Sigurður Ingi Friðleifsson
Framkvæmdastjóri Orkuseturs

27.05.2009 Maí

Möguleikar til orkusparnaðar

 

Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs verður með opinn fund á Kaffihorninu fimmtudaginn 28. maí kl. 12.00 um möguleika til orkusparnaðar. Sigurður Ingi mun fjalla um allt mögulegt sem lýtur að orkusparnaði, s.s. raforku, húshitun, eldsneyti og nýjum orkugjöfum. Á heimasíðu Orkusetursins, orkusetur.is, er margt fróðlegt eins og td. 10 sparnaðarráð sem eru upplistuð hér á eftir. Hlutverk Orkuseturs er að stuðla að aukinni vitund almennings og fyrirtækja um skilvirka orkunotkun. Verkefni Orkuseturs eru einnig á sviði nýrra orkugjafa og gerð fræðsluefnis. Verður þetta eflaust mjög fróðlegur fyrirlestur og mörgum til fjár.

Allir hvattir til að mæta. Súpa og brauð í boði.

Sveitarfélagið Hornafjörður

Sparnaðarráð af orkusetur.is

Bæta má orkunýtni án aukakostnaðar, hér eru tíu ráð sem kosta ekkert en geta dregið verulega úr orkurkostnaði heimila:

  • Lækka innihita niður í 20°C
  • Slökkva alveg á raftækjum, ekki skilja þau eftir í biðstöðu
  • Hafa glugga lokaða nema við gagngera loftun
  • Ganga eða hjóla styttri vegalengdir
  • Fylla ávallt þvottavél og uppþvottavél
  • Hafa lok á pottum og pönnum og þekja alla helluna
  • Setja gluggatjöld fyrir glugga að næturlagi
  • Vistakstur með mjúkum akstri og réttum loftþrýsting í dekkjum
  • Ekki birgja ofna með húsgögnum eða gluggatjöldum
  • Fara í sturtu frekar en bað

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica