Fékk landnámshænur í afmælisgjöf
Hver þekkir ekki það stóra vandamál að finna almennilega gjöf handa afmælisbarni sem er að komast á ,,miðjan aldur´´ og á allt eins og gjarnan er sagt við slíkar aðstæður.
Starfsfólkið í Nettó á Höfn stóð fyrir þessu vandamáli fyrir stuttu þegar Pálmi Guðmundsson þeirra ástsæli yfirmaður og verslunarstjóri á staðnum varð 50 ára.
En eins og þeir vita sem eitthvað þekkja til vinnur þarna samvalinn og úrræðagóður hópur fólks sem vanur er að leysa farsællega þau mál sem upp koma og svo var líka raunin- þetta var ekkert mál.
Fyrst og fremst varð að finna eitthvað sem færði gleði og hefði góð áhrif á heilsu og líðan afmælisbarnsins, yki verðmæti sitt og ávaxtaðist vel. Ekki vafðist fyrir starfsfólkinu að finna út úr þessu og var drifið í að útvega þrjár landnámshænur og einn skrautlegan landnámshana sem öllum var komið fyrir í veglegu hænsnabúri og afhent afmælisbarninu á tilsettum tíma og skömmu seinna var fyrsta eggið komið.
Til nánari skýringa á hvernig gjöfin uppfyllir þessi skilyrði skal geta þess að morgunstund gefur gull í mund og haninn galar snemma morguns alla daga og vekur alla í næsta nágrenni. Eggin úr landnámshænum eru einstaklega góð og holl og auðvelt er að stækka hænsnastofninn með útungun. Landnámshænur eru heimilisprýði og þykja vitrar.
Það er af viðbrögðum afmælisbarnsins að segja að hann var alsæll og sagðist aldrei hafa fengið svona góða afmælisgjöf , hún hefði ekki getað verið betri. Pálmi gat þess að nöfn á hænsnin yrðu valin úr hópi gefendanna.





Skrifa athugasemd