Sundriðið yfir Jökulsá
Aðfaranótt fimmtudagins 21. maí fór vaskur hópur manna á hestum yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi. Mennirnir koma víðsvegar af Suðurlandi, fyrir hópnum fer Hermann Árnason en hann er sonur Árna Sigurjónssonar frá Heiði í Mýrdal og eru þeir feðgar miklir áhugamenn um vöð. Hópurinn nefnir ferðina „Í strauminn“ og ber nafn með rentu. Daginn áður höfðu þeir lagt leið sína yfir Hornafjarðarfljótin en þeir ætla að ríða öll vatnsföll frá Höfn að Selfossi án þess að fara yfir brýr. Þó nokkur fjöldi fólks lagði leið sína að Jökulsárlóni í fyrrinótt til að sjá þennan einstaka viðburð en jafnvel elstu menn rekur ekki minni til þess að það hafi verið sundriðið yfir Jökulsá í þeirra tíð.
Ingimar á Jaðri sem hefur mikla reynslu af svona ferðalögum var á staðnum og sagði hann að menn hefðu oft rekið hrossin yfir en aldrei setið þau.
Heyrst hefur að hópurinn sem fór yfir í nótt hafi í hyggju að ríða gömlu póstmannaleiðina, jafnvel á næsta ári, en þá er farið yfir jökulinn. Í næsta tölublaði Eiðfaxa sem kemur út eftir helgi er grein um nokkur ungmenni frá Hornafirði sem hafa verið að sundríða reglulega og viðhalda því þessum frábæra eiginleika Hornfirska vatnahestsins.
(Frétt: Rósa Björk Halldórsdóttir, Ríki Vatnajökuls)





Skrifa athugasemd