Vegstæði yfir Hornafjarðarfljót
Bæjarstjórn afgreiddi tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins, óbreytta frá því hún var auglýst, á síðasta fundi bæjarstjórnarinnar sem haldin var 12. maí sl. Tillagan var til umræðu í annað sinn að loknum auglýsingar- og athugasemdafresti. Tvær athugasemdir bárust frá íbúum sveitarfélagsins og var þeim svarað að undangenginni umsögn byggingar- og skipulagsnefndar. Að sögn Hauks Inga Einarssonar framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs bíður skipulagið nú afgreiðslu Skipulagsstofnunnar sem gerir tillögu um afgreiðslu skipulagsins til Umhverfisráðherra. Skipulagsstofnun hefur fjórar vikur til að vinna málið til ráðherra. Haukur Ingi hvetur alla þá sem vilja kynna sér málið nánar að fara inn á heimasíðu sveitarfélagsins www.hornafjordur.is.




Skrifa athugasemd