Keypti nýlega líkbíl á uppboði í Bandaríkjunum
Vatnajökull Travelkeypti nýlega á uppboði í Bandaríkjunum líkbíl, Buick árgerð 87, fallegan og velmeðfarinn bíl. Bíllinn er kominn á staðinn og hefur nú þegar farið fjórar ferðir þar á meðal til Reykjavíkur. En hvað fékk Guðbrand Jóhannsson framkvæmdarstjóra Vatnajökul Travel til að fara út í þessa þjónustu sem fyrirfram er vitað að ekki stendur undir kostnaði?
,,Þetta er bara ein af þessum vitlausu hugmyndum sem maður fær og framkvæmir segir Guðbrandur, ég get ekki hugsað mér að þurfa að láta mína nánustu þurfa að fara síðustu ferðina með flutningabíl eins og oft hefur þurft þegar enginn sér útbúinn bíll er á svæðinu´´.
Það er auðheyrt að Hornfirðingar fagna þessu góða framtaki Guðbrandar sem er stór þáttur í útfararþjónustu á staðnum.





Skrifa athugasemd