Hér drýpur smjör af hverju strái
Vorið hér í Suðursveit er alveg yndislegt bæði veðurfarslega og mannlega séð og við höfum ekki ástæðu til annars en að vera bjartsýn á framtíðina segir Laufey Helgadóttir hótelstjóri á Smyrlabjörgum. Þetta er besta vorið í ferðaþjónustunni frá því við byrjuðum, mikið komið af hópum auk þeirra sem eru á eigin vegum og hjá ferðaþjónustu bænda er umtalsverð aukning á pöntunum og það er bara virkilega bjart framundan. Bókanir fyrir sumarið eru mjög góðar og það hefur síst verið minna um afpantanir en áður svo þetta lítur allt virkilega vel út.
Laufey segir að í sumar verði lögð áhersla á að hafa þau matvæli sem þau fái hér í héraðinu. Hér er orðin svo fjölbreytt matvælaframleiðsla að við erum að verða sjálfum okkur nóg, við fáum allan fisk og mest allt það kjöt sem við þurfum svo að ég held að við fáum hér nánast allt nema hveitið og þá bjórinn og vodkað. Að venju verða vinsælu Smyrlabjargar-hlaðborðin á sínum stað og í sumar verður boðið upp á ýmsa nýja rétti algjöra hollusturétti sem einnig eru unnir úr því góða og fjölbreytta hráefni sem við höfum hér.
Það er svo glæsilegt að sjá og heyra hvað fólk hér er jákvætt og hefur vaknað til meðvitundar um hvað við höfum rosalega flottan mat og þetta skapar okkur ótal tækifæri sem við þurfum að nýta.
Mikil eftirspurn er eftir vinnu á hótelinu en Laufey segist vera svo lánsöm að fá stúlkurnar sínar aftur þær sem verið hafa á sumrin. Það er mikill mannauður að halda sama góða starfsliðinu og að það skuli halda tryggð við okkur.
Margir komu við á Smyrlabjörgum í veðurblíðunni um helgina þegar ferðaþjónustuaðilar í Suðursveit buðu upp á fjölbreytta dagskrá og börnin komust í snertingu við sveitalífið, lömbin og annað sem einungis sveitin hefur upp á að bjóða.





Skrifa athugasemd