Sumarlokun fæðingardeildar
Fæðingardeild HSSA verður lokuð frá og með 3. júlí til 10. ágúst vegna sumarleyfa. Ljósmóðir mun á þessu tímabili koma tvisvar og sinna mæðravernd en ungbarnaeftirlit verður með venjulegum hætti. Guðrún Júlía Jónsdóttir hjúkrunarforstjóri HSSA segir að því miður hafi ekki verið hjá þessari lokun komist í þetta sinn.
Heimahjúkrun HSSA hefur aukist jafnt og þétt og mikil áhersla lögð á að allir sem á aðhlynningu og hjúkrun þurfa á að halda geti verið eins lengi heima og mögulegt er. Heimaþjónustan hefur gengið svo vel að dvalargestir í Skjólgarði eru aðeins þrír og enginn á biðlista. Starfsmenn við heimahjúkrun eru 4, í heimilishjálp 6-7 manns, 3 starfsmenn í dagvistinni og 2 í Ekru
Guðrún Júlía segir að alla daga ársins sé matur sendur til þeirra sem þess þurfa og eins er matur í Ekru fyrir eldri borgara og eru um 20 manns sem nýtir sér þjónustuna þar.




Skrifa athugasemd