Nýja sundlaugin
Starfsemi nýju sundlaugarinnar okkar hér á Höfn er að komast í fastar skorður, þetta er allt að smella saman segir Haukur Þorvaldsson og það er ekki annað að heyra og sjá en að almenn ánægja sé með það sem hér er boðið uppá. Sundlaugin er opin virka daga frá kl. 6.45 til 21.00 og um helgar frá kl 10.00 til 19. 00. Sundleikfimi fyrir eldri borgara er einu sinni í viku þá eru almennar sundæfingar, skriðsundsæfingar eru að byrja og til stendur að vera með kennslu fyrir þá sem ekki eru syntir.
Brautarlínur fyrir sértíma í lauginni eru væntanlegar um miðjan þennan mánuð einnig afgreiðsluborð og þá verður allur búnaður kominn á sinn stað þá eru Sindramenn búnir að setja upp gos-sjálfsala í afgreiðslunni.
Verð á stökum miðum í sund er 350 kr. fyrir fullorðna og 150 fyrir börn, 15 miða kort fullorðinna er á 3.300 og 15 miða kort barna kostar 1500 kr. Einnig er hægt að fá árskort.
Þó veður væri ekki sem skemmtilegast um helgina voru sundlaugargestir rúml. 500 og til gamans má geta þess að á sambærilegum tíma komu hátt í hundrað manns í gömlu laugina.
Haukur segir sérstaklega áberandi gleði unga fólksins með rennibrautirnar, það hreinlega geislar af þeim gleðin og hamingjan yfir þessari frábæru aðstöðu sem þau hafa nú fengið hér.
Taka skal fram að nýtt símanúmer sundlaugarinnar er 470-8477




Skrifa athugasemd