Maí
30-05-06_094
30-05-2006
Björgunarsveitin Hornafirði að störfum

09.05.2009 Maí

Ferðafólkið á Vatnajökli komið til byggða

Frétt af mbl.is og frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu

Björgunarsveitarmenn komu að tjöldum sex Spánverja og tveggja Íslendinga á Vatnajökli um klukkan eitt í nótt. Ástandið á hópnum var ágætt en aðstæður á jökli voru "arfavitlausar" að sögn björgunarsveitmanna.

„Þetta gekk vonum framar miðað við veður,“ sagði Friðrik Jónas Friðriksson, formaður Björgunarfélags Hornafjarðar, sem tók þátt í björgunaraðgerðunum. Ekið var með ferðafólkið til Hala í Suðursveit en þangað kom það kl. 07.30 í morgun.

Ferðamannahópurinn var á jöklinum  í rúma tvo sólarhringa. 32 björgunarsveitarmenn voru sendir eftir hópnum og var björgunarliðið í tveimur hópum. Annar lagði af stað úr Jökulheimum, hinn austan af Breiðamerkurjökli. Farið var á snjóbílum og jeppum en ferðin sóttist hægt vegna aðstæðna. Björgunarsveitarmennirnir eru frá Höfn, úr Vík, frá Hellu og Reykjavík.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica