Maí
Boli
Boli

08.05.2009 Maí

Fólk í vandræðum á Vatnajökli

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út fyrir skömmu vegna hóps fólks sem er veðurtepptur mitt á milli Grímsvatna og Esjufjalla á Vatnajökli.  Um er að ræða átta manns sem var á ferð á gönguskíðum á jöklinum.


Fregnir herma að ekkert alvarlegt ami að fólkinu en það er uppgefið þar sem veður er slæmt og ofankoma mikil. Hafa þau verið að moka snjó af tjöldum í alla nótt.

Snjóbílar frá Hellu og höfuðborgarsvæðinu eru lagðir af stað til aðstoðar sem og vélsleðar frá Höfn. Búist er við að nokkrar klukkustundir taki að komast að fólkinu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica