Maí
Kjötvinnsla á Seljavöllum
Kjötvinnsla á Seljavöllum
Mynd 2 af 2
1 2

07.05.2009 Maí

Beint frá býli

Á Seljavöllum er nú hægt að kaupa nautakjöt beint frá bónda. Þau hjónin Eiríkur Egilsson og Elín Oddleifsdóttir hafa innréttað litla kjötvinnslu heimafyrir. Nautunum er slátrað í sláturhúsi Norðlenska á Höfn, en síðan taka þau kjötið heim og það er látið hanga í kæli í u.þ.b 2 vikur til að það meyrni.

Verkefnið var í fyrstu unnið í samstarfi við MATÍS á Höfn, sem sá m.a um að fá kjötiðnaðarmann hingað austur til að leiðbeina við úrbeiningu og gefa góð ráð varðandi pökkun og geymslu.
Kjötið selja þau síðan úrbeinað, fullsnyrt og pakkað í heilum, hálfum og ¼ hluta skrokks. ¼ hluti úr skrokk er að gefa u.þ.b 30 – 40 kg af beinlausu kjöti sem selt er á 1400 kr /kg sama kílóverð jafnt fyrir t.d fille, gúllas og hakk. Þetta ætti því að vera töluverð búbót fyrir neytendur, en jafnframt segja þau mikinn kost að fólk getur verið öruggt með að þetta er 100 % kjöt sem engu er blandað saman við, en það mun vera algengt að það hakk sem er á boðstólnum í verslunum sé blandað ýmsum aukaefnum til að gera kjötið þyngra.
Þau Eiríkur og Elín segjast hafa farið út í þetta til að reyna að auka verðmætasköpun vörunnar. Þá sé mikilvægt að geta boðið upp á þennan valkost. Það er sorglegt til þess að vita, að nú þegar aldrei hefur verið mikilvægara að spara gjaldeyri, þá voru fyrstu 3 mánuði ársins flutt inn 33 tonn af nautgripakjöti, þar af 24 tonn af hakki skv. tölum frá Hagstofu Íslands.
Með því að geta keypt vöruna beint frá býli, þá eru menn vissir um uppruna hennar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica