Austfirsk handverks- hönnunar og listakynning í Löngubúð á Djúpavogi
Þann 9.maí næstkomandi stendur Tengslanet Austfirskra Kvenna, TAK, fyrir mikilli handverks- hönnunar- og listakynningu í Löngubúð á Djúpavogi. Lagt var upp með að fá eina konu úr hverju bæjarfélagi frá Hornafirði til Vopnafjarðar til að kynna verk sín og rekstur, en ásókn og áhugi á þessu er svo mikill að yfir 23 konur munu kynna og enn bætist í hópinn. Fjölbreytileikinn verður í fyrirrúmi og allar konur sem vilja kynna sér íslenskt handverk, hönnun og listir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Þrjár Hornfirskar konur verða þátttakendur í sýningunni, þær Ágústa Arnardóttir, Nanný og Árnína Guðjónsdóttir.
Þetta verður einhver flottasti og fjölbreyttasti viðburður í handverki og hönnun sem haldinn hefur verið af austfirskum konum. Allar konur hjartanlega velkomnar og vonumst við til að sjá sem allra flestar.
Dagskráin er frá 13:00-16:00 og verður á þessa leið:
Vörur til sýnis í byrjun og létt spjall
Súpa og brauð, kr 850
Kynning á TAK
Kynning frá Austfirskum konum:
Hornafjörður, Árnína Guðjónsdóttir- Handverk úr grjóti og hrosshári. http://ninagud.123.is
Hornafjörður, Nanný- Leirlist
Djúpivogur, Ágústa Margrét Arnardóttir- Tösku- og fylgihluta hönnun og framleiðsla. www.gustadesign.is
Djúpivogur, Kvennasmiðjan– Handverk úr lopa
Breiðdalsvík, Guðlaug Gunnlaugsdóttir- Ás handverkshús og Handverk úr lopa, garni og fl.
Breiðdalsvík, Helga Melsted- Handverk úr silfri- járni og fl.
Stöðvarfjörður, Sólrún Friðriksdóttir- Textíllistakona, handmáluð sjöl úr silki og þæfðri ull.
www.123.is/solrun.frid
Stöðvarfjörður, Rósa Valtingojer- Handverk úr keramik og leir, handmótaðir fuglar.
Stöðvarfjörður, Þóranna Snorradóttir- Handunnið silfurskart og Salthúsmarkaðurinn.
Stöðvarfjörður, Ingibjörg Eyþórsdóttir – Handunnin náttúru smyrsli.
Fáskrúðsfjörður, Berglind Ósk Agnarsdóttir- Sagnalist.
Neskaupsstaður, Theodóra Alfreðsdóttir- Handverk úr leir og ull. http://skorrahestar.123.is
Neskaupsstaður, Anna Bjarnadóttir- Listasmiðjan Þórsmörk.
Eskifjörður, Kata- Glerlist
Reyðarfjörður, Hrafnhildur M. Geirsdóttir- Hrefnuber og jurtir, handgerðar sultur.
Reyðarfjörður, Esther Ösp Gunnarsdóttir- Hárskraut hönnun og framleiðsla. www.harspangir.com
Seyðisfjörður, Þórdís Bergsdóttir – Ullarvinnsla frú Láru, þæfð ull.
Egilsstaðir, Ingunn Þráinsdóttir- Grafísk hönnun og bókagerð. www.heradsprent.is
Egilsstaðir, Agnes Brá Birgisdóttir- Tónlist. www.warenmusic.com
Egilsstaðir, Íris Lind- Myndlist og fleira.
Klaustursel, Ólafía Sigmarsdóttir, handverk úr hreindýraleðri
Fellabær, Sandra Jónsdóttir- Ljósmyndun og þrykk.
Vopnafjörður, Hólmfríður Ófeigsdóttir- Prjónuð sjöl og handstúkur úr hreindýraleðri.
.jpg)




Skrifa athugasemd