Maí
Steinhestur
Steinhestur
Mynd 1 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

07.05.2009 Maí

Austfirsk handverks- hönnunar og listakynning í Löngubúð á Djúpavogi

Þann 9.maí næstkomandi stendur Tengslanet Austfirskra Kvenna, TAK, fyrir mikilli handverks-  hönnunar- og listakynningu í Löngubúð á Djúpavogi. Lagt var upp með að fá eina konu úr hverju bæjarfélagi frá Hornafirði til Vopnafjarðar til að kynna verk sín og rekstur, en ásókn og áhugi á þessu er svo mikill að yfir 23 konur munu kynna og enn bætist í hópinn. Fjölbreytileikinn verður í fyrirrúmi og allar konur sem vilja kynna sér íslenskt handverk, hönnun og listir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Þrjár Hornfirskar konur verða þátttakendur í sýningunni, þær Ágústa Arnardóttir, Nanný og Árnína Guðjónsdóttir.

Þetta verður einhver flottasti og fjölbreyttasti viðburður í handverki og hönnun sem haldinn hefur verið af austfirskum konum. Allar konur hjartanlega velkomnar og vonumst við til að sjá sem allra flestar.

 

Dagskráin er frá 13:00-16:00 og verður á þessa leið:

Vörur til sýnis í byrjun og létt spjall

Súpa og brauð, kr 850

Kynning á TAK

Kynning frá Austfirskum konum:


Hornafjörður, Árnína Guðjónsdóttir-  Handverk úr grjóti og hrosshári. http://ninagud.123.is

Hornafjörður, Nanný- Leirlist

Djúpivogur,  Ágústa Margrét Arnardóttir- Tösku- og fylgihluta hönnun og framleiðsla.  www.gustadesign.is

Djúpivogur, Kvennasmiðjan– Handverk úr lopa

Breiðdalsvík, Guðlaug Gunnlaugsdóttir- Ás handverkshús og Handverk úr lopa, garni og fl.

Breiðdalsvík, Helga Melsted- Handverk úr silfri- járni og fl.

Stöðvarfjörður, Sólrún Friðriksdóttir- Textíllistakona, handmáluð sjöl úr silki og þæfðri ull.
www.123.is/solrun.frid

Stöðvarfjörður, Rósa Valtingojer- Handverk úr keramik og leir, handmótaðir fuglar.

Stöðvarfjörður, Þóranna Snorradóttir- Handunnið silfurskart og Salthúsmarkaðurinn.

Stöðvarfjörður, Ingibjörg Eyþórsdóttir Handunnin náttúru smyrsli.

Fáskrúðsfjörður, Berglind Ósk Agnarsdóttir- Sagnalist.

Neskaupsstaður, Theodóra Alfreðsdóttir- Handverk úr leir og ull. http://skorrahestar.123.is

Neskaupsstaður, Anna Bjarnadóttir- Listasmiðjan Þórsmörk.

Eskifjörður, Kata- Glerlist

Reyðarfjörður, Hrafnhildur M. Geirsdóttir- Hrefnuber og jurtir, handgerðar sultur.

Reyðarfjörður,  Esther Ösp Gunnarsdóttir- Hárskraut hönnun og framleiðsla.  www.harspangir.com

Seyðisfjörður, Þórdís Bergsdóttir – Ullarvinnsla frú Láru, þæfð ull.

Egilsstaðir, Ingunn Þráinsdóttir- Grafísk hönnun og bókagerð. www.heradsprent.is

Egilsstaðir, Agnes Brá Birgisdóttir- Tónlist. www.warenmusic.com

Egilsstaðir, Íris Lind- Myndlist og fleira.

Klaustursel, Ólafía Sigmarsdóttir, handverk úr hreindýraleðri

Fellabær, Sandra Jónsdóttir- Ljósmyndun og þrykk.

Vopnafjörður, Hólmfríður Ófeigsdóttir- Prjónuð sjöl og handstúkur úr hreindýraleðri.

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica