Maí
Sóknarbraut – útskrift 2009
Sóknarbraut – útskrift 2009
Sóknarbraut – útskrift 2009
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

06.05.2009 Maí

Kynna viðskiptaáætlanir sínar í Nýheimum

Sóknarbraut námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja sem hófst í janúar lýkur með kynningu í Nýheimum n.k. föstudag þar sem þátttakendur kynna viðskiptaáætlun sína sem er stór hluti af verkefnum námskeiðsins.

Starfsmenn Impru á Höfn þau  Ari Þorsteinsson  og Björk Pálsdóttir sáu um skipulag, vinnusmiðju og handleiðslu. Námskeiðið hefur gengið mjög vel og góð stemming hjá þátttakendum. Mikil gróska er hjá frumkvöðlum á Hornafirði margar góðar hugmyndir í vinnslu. Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands bindur miklar vonir við að þessi verkefni muni vera innspýting í atvinnulífið á svæðinu. Nýsköpun er mikilvæg ekki hvað síst nú þegar þrengir að í þjóðarbúskapnum er gott að vera vakandi yfir hugsanlegum tækifærum til atvinnusköpunar. Ef menn vilja koma viðskiptahugmynd í framkvæmd þá er öruggast að vanda til verka og gera viðskiptaáætlun til að greina hvort hugmyndin sé arðbær.    
Námskeiðið Sóknarbraut var hluti af menntaverkefni Nýrra leiða sem menntamálaráðuneytið styrkir sem hluta af mótvægisaðgerðum ríkisstjórnar.  Fyrirtækin sem koma einnig að menntaverkefninu eru Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Framhaldskólinn í Austur Skaftafellssýslu, Þekkingarnet Austurlands, Skinney Þinganes hf, Afls starfsgreinafélag, smábátafélagið Hrollaugur og Sveitarfélag Hornafjarðar.

Útskriftin hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 15:00. Hver kynning tekur um 15 mínútur og hægt er að koma á einstaka kynningar. Kennarar námskeiðsins voru G. Ágúst Pétursson frá Frumkvöðlafræðslunni og Sigurður Steingrímsson verkefnastjóri Impru á Akureyri.

Dagskrá:

10:00-10:15    
Setning: Ari Þorsteinsson verkefnastjóri  hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð á Hornafirði

10:15-12:30     
Kynningar:
Camping.is, Sigrún Kapitóla Guðrúnardóttir
Steinahestar, Árnína Guðjónsdóttir
Humarhátíð, Menningarmiðstöð Hornafjarðar Guðlaug Pétursdóttir
Grjúpán beint frá býli, Unnur Guðmundsdóttir
Jöklamús, Sigurður Einarsson
Blásturshljóðfæraviðgerðir, Katrín Birna Þráinsdóttir
Reyktur Makríll, Grétar Vilbergsson
Gusta design, Ágústa Arnardóttir
Sundlaug Hafnar, Sveitarfélagið Hornafjörður Haukur Þorvaldsson

12:30 - 13:00
Hádegishlé.

13:00 – 15:00    
Fuglaskoðun á suðausturlandi, Rannveig Einarsdóttir og Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir
Íþróttamót, Valdimar Einarsson
Hafnarvík Heppa, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Björg Erlingsdóttir
Matreiðslubók, Jón Sölvi Ólafsson
Nemar úr FAS: Fimleikanámskeið, Inga Rósa Ingvadóttir og Þóra Björg Ingvadóttir
Sjónvarpsþáttur, Ásgrímur Arason,Óli Albert Sævarsson og Óli Kr. Benediktsson
Jökuljaki, Heiða Vilborg Sigurbjörnsdóttir, Iðunn Tara Ásgrímsdóttir og Sandra Rán Ásgrímsdóttir



Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica