Maí
Þrösturinn
Þrösturinn
Mynd 3 af 3
1 2 3

05.05.2009 Maí

Lítil saga af vorinu í ríki Vatnajökuls

 

Hér kemur lítil saga af vorinu í ríki Vatnajökuls nánar tiltekið frá Rósu Björk Halldórsdóttur á Rauðabergi, Mýrum.

"Ég hef haft þann sið að skreyta kransa á jólum og páskum, hengi þá síðan á útidyrnar. Á jólunum skreyti ég með rauðum eplum, smáfuglarnir hafa kunnað að meta eplin þannig að vanalega er ekki mikið orðið eftir af þeim á þrettándanum þegar að ég tek kransinn niður. Núna um páskanna skreytti ég krans með allskyns páskaskrauti gervifuglum í gulum lit einnig setti ég gervihreiður, ég tímdi ekki að taka kransinn niður strax eftir páska því það er smá nostur við þetta og svo var þröstur farinn að venja komur sínar að kransinum og einn daginn var komið þetta fína hreiður, nú er svo komið að það eru kominn fjögur egg. Þrösturinn lætur ekkert á sig fá þó að ég gangi þurfi að opna hurðina og flýgur bara í smá skjól á meðan ég geng um, hann lætur það heldur ekki trufla sig að á heimilinu eru fjórir stórir sleðahundar".

Nú eru bara góð ráð dýr segir Rósa, "Á ég að færa kransinn eða fara út og inn bakdyramegin?"

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica