Maí
Jóna Eðvalds við bryggju
Jóna Eðvalds við bryggju
Jóna Eðvalds við bryggju

04.05.2009 Maí

Jóna Eðvalds II SF-208 seld.

Gengið hefur verið frá samningum um sölu á Jónu Eðvalds II. Kaupandi er útgerðarfélagið Havdron í Noregi. Havdron er frá Hjellestad í Noregi og eiga þeir eitt skip fyrir og verður Jóna viðbót við skipastól þeirra. Jóna Eðvalds kom í eigu Skinneyjar-Þinganess árið 2003 en þá var það keypt frá Shetlandseyjum. Skipið var smíðað í Noregi 1997 fyrir Íslendinga og hét þá Pétur Jónsson. Jóna Eðvalds II hefur legið verkefnalaus í Hornafjarðarhöfn síðastliðið ár. Skipinu var gefið nýtt nafn áður en það sigldi til áleiðis til Bergen s.l. föstudagskvöld og heitir það nú Krossöy. Skinney-Þinganes óskar nýjum eigendum velfarnaðar með skipið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica