Maí
Útskrift úr raunfærimati í vélvirkjun
Útskrift úr raunfærimati í vélvirkjun
Á myndinni eru:Björn Jón Ævarsson,Ólafur Jónsson, Jón Vilberg Gunnarsson, Ingvar Pétursson, Ögmundur Jón Guðnason, Sveinbjörn Steinþórsson. Á myndirnar vantar: Andrés Einarsson, Ágúst Má Ágústsson og Grzegorz Krzysztos Wegiel. Mynd: Sigurður Mar Halldórsson

01.05.2009 Maí

Útskrift úr raunfærnimati

Síðast liðinn þriðjudag voru níu menn útskrifaðir úr raunfærnimati í vélvirkjun og er það fyrsta raunfærnimatið sem fram fer hér á Hornafirði. Matið fór fram á vegum Þekkingarnets Austurlands, Iðunnar fræðsluseturs og FAS og var það styrkt með framlagi úr mótvægisaðgerðaverkefninu Nýjar leiðir. Mennirnir hafa misjafnlega langa reynslu af starfi í greininni, hafa lært misjafnlega mikið í skóla og fengu því misjafna niðurstöðu úr matinu. Allir hafa þeir áhuga á að halda áfram að læra til að geta seinna meir tekið sveinspróf í vélvirkjun. Og nú er það næsta verkefni skólamannanna hér að skapa aðstæður til þess að þeir getið haldið áfram að mennta sig.

Til þess að hægt væri að meta þekkingu og færni manna í fjölmörgum þáttum vélvirkjunar þurftu matsmenn og þátttakendur að hafa aðgang að verkstæði. Eigendur Vélsmiðjunnar Foss, þeir Ari og Eiríkur Jónssynir buðu verkstæði sitt fram endurgjaldslaust og var það ómetanlegt framlag til verkefnisins.

Raunfærnimat er staðfesting og mat á raunverulegri kunnáttu og færni einstaklings í viðkomandi fagi án tillits til hvar og hvernig hennar hefur verið aflað. Tilgangurinn er að gefa fólki kost á að hefja nám í greininni miðað þá niðurstöðu sem matið gefur og stytta þann tíma sem þeir þurfa að vera í skóla til að ljúka sveinsprófi eða öðrum starfsréttindum. Til að geta tekið þátt í raufærnimati þurfa menn að vera 25 ára eða eldri og hafa starfað í greininni í a.m.k. 5 ár samanlagt. Fyrirhugað er að bjóða upp á raunfærnimat í fleiri greinum er fram líða stundir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica