Mars
Jóhannes Kristjánsson
Jóhannes Kristjánsson

31.03.2009 Mars

Hagyrðingamót í Mánagarði

3. apríl

 

Hagyrðingamót Karlakórsins Jökuls verður haldið í Mánagarði föstudaginn 3. apríl n.k. Að undanförnu hafa karlakórsmenn verið á fullu við undirbúning og hafa þeir fengið til sín valinkunna menn til að snara fram nokkrum góðum vísum sér og öðrum til skemmtunar. Að þessu sinni hafa þeir fengið Jóhannes Kristjánsson skemmtikraft til þess að halda utan um samkomuna, og til aðstoðar hefur hann Þorstein Bergsson,  Þórarinn Pálmason, Hrönn Jónsdóttur og  Sigurjón V. Jónsson.  Má segja að þetta séu allt valinkunnir snillingar þegar kemur að vísnakveðskap. 

Karlakórinn Jökull mun að sjálfsögðu syngja nokkur lög undir stjórn Jóhanns Morávek við undirleik Guðlaugar Hestnes.

Mótið hefst kl 20:00 og mun húsið opna kl 19:30.

Er það von karlakórsmanna að menn hafi gaman að þessu en það er alltaf mannbætandi að heyra góðan kveðskap.- BF

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica