Mars
Dansað
Dansað

31.03.2009 Mars

Dans dans dans

Nú verður haldið áfram að dansa

Í síðustu viku var hann Jón Pétur frá dansskóla Jóns Péturs og Köru staddur á Höfn til þess að kenna Hornfirðingum á öllum aldri dans. Kennslan heppnaðist vel og var mjög vel mætt á dansnámskeið sem haldið var fyrir almenning í Mánagarði á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag. Á þessum þremur dögum lærðu rúmlega 50 manns að dansa allt frá dansi með einföldu haldi upp í tjútt. Til þess að viðhalda svo danskunnáttunni er fyrirhugað að hafa danskvöld einu sinni til tvisvar í mánuði í Pakkhúsinu. Fyrsta danskvöldið verður mánudaginn 6. apríl í næstu viku og hefst klukkan 20. Alla sem langar til þess að draga fram dansskóna bjóðum við hjartanlega velkomna.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica