Fyrstu lömbin komin í Suðursveitinni
Fyrstu lömbin í Suðursveitinni fæddust 20. mars í Gamla-Garði. Ærin átti þrjú lömb og er það mjög góð frjósemi á þessum tíma ársins þar sem ærin hefur haldið undir hrút löngu fyrir eðlilegan fengitíma og áður en tekið var inn á gjöf. Önnur ær bar svo tveimur lömbum í síðustu viku. Þrjár ær báru líka í síðustu viku í Lækjarhúsunum. Síðastliðin föstudag (27. mars) bar ær þremur lömbum á Hala. Um helgina komu þrjú lömb á Gerði, ein tvílemba og ein einlemba. Í gær bar svo ein ær á Brunnavöllum. Myndirnar sem fylgja með fréttini eru af lömbunum á Gerði.
Óvenjulegt er að ær beri svona snemma en það kemur fyrir að ein og ein þjófstarti fengitímanum. Í rauninni nær eðlislægur fengitími íslensku sauðkindarinnar frá lokum október fram í apríl. Meiri hluti ánna festa þó fang í desember sem er hagstæðara þar sem tíðarfarið er betra þegar líður fram í apríl og maí. Þessar ær sem bornar eru núna hafa fest fang í lok október eða um mánaðarmótin október/nóvember áður en hrútarnir voru teknir inn á hús, en þeir verða að vera komnir inn í síðasta lagi 5. nóvember. - ÞB




Skrifa athugasemd