Mars
Hlynur Pálmason kominn inn í danskan kvikmyndaskóla
Hlynur Pálmason hefur fengið ingöngu í danska kvikmyndaskólann, þar sem hann mun stúdera leikstjórn næstu fjögur árin. Það komast aðeins sex nemendur inn í leikstjórn annað hvert ár og voru yfir 200 manns sem sóttu um þetta árið. Það er mikið ferli að komast inn í skólann segir Hlynur en hann þurfti að ganga í gegnum 5 lotur til þess að komast loks inn. Þessum lotum er skipt í viðtöl, skrifleg og munnleg próf og viku í verkefnarvinnu. Í lokaprófinu þarf maður að leikstýra atriði í upptökuveri með þekktum leikurum og tíu manna nefnd sem stendur yfir manni og gagngrýnir. Í þessari nefnd eru kennarar, prófessor í list og kvikmyndagerð, fyrverandi nemendur og leikstjórar. Hlynur þurfti að fljúga þrisvar til Danmerkur vegna inntökuprófanna og hann var úti í tæpan mánuð í eitt skiptið. Hlyni hlakkar til að flytja út með fjölskylduna og að einbeita sér að kvikmyndagerð næstu fjögur árin.Hann er mjög ánægður að þessi áfangi sé búinn, og að hafa komist inn og er núna að undirbúa önnur verkefni. Þar á meðal er málverkasýning á Graðaloftinu í sumar og einnig stuttmynd sem hann mun taka upp í sumar.
Hlynur tekur núna að sér fram í ágúst alhliða myndatökur með náttúrulegri lýsingu sem hann segir gera myndirnar sérstakar og lifandi. Hægt er að hafa samband eða panta tíma hjá honum í síma: 8683090 og e-mail: hlynurp@hotmail.com
www.hpalmason.com
www.flickr.com/photos/hlynurp
http://www.hlynurp.blogspot.com/





Skrifa athugasemd