Mars
Eþíópískur matur
Eþíópískur matur

28.03.2009 Mars

Engera og Wate

MAT103

 

Á hverri önn eru ýmsir verklegir áfangar í boði í FAS og er það liður í stefnu skólans að bjóða upp á fjölbreytt nám. Aðra hvora vorönn er í boð áfanginn MAT103 þar sem nemendur læra að umgangast matvæli og matbúa ýmsa rétti. Kennslan fer fram í skólaeldhúsi grunnskólans þar sem aðstaða er til slíkrar kennslu. Það er þó ekki nema takmarkaður fjöldi sem kemst að í skólaeldhúsinu hverju sinni.
Þessa önnina eru tólf nemendur í matreiðslu og komust færri að en vildu. Oft eru nemendur af erlendu bergi brotnu í matreiðslu sem vilja læra að vinna með íslenskt hráefni. Meðal nemenda að þessu sinni er Feven Solomon Birhanu sem kemur frá Eþíópíu en hún hefur verið búsett á Höfn í eitt ár. Í þessari viku kenndi hún hópnum að búa til eþíópískan mat. Nemendur lærðu að búa til brauð sem kallast Engera. Þá er búin til deigkúla og hún síðan geymd í léttsöltuðu vatni í tvo sólarhringa. Þá hafa deigið og vatnið blandast saman þannig að úr verður þunn soppa sem er bökuð á pönnu líkt og pönnukökur. Með þessu er borðaður kjötréttur sem kallast wate. Þar er notað eþíópískt krydd sem kallast barbari.
Það var í nógu að snúast við matargerðina og má sannarlega segja að íslensku krakkarnir hafi kynnst framandi matargerð og matarvenjum. Þegar sest var að snæðingi þurftu nemendur að borða að eþíópískum sið og áttu að borða án hnífapara. Krakkarnir voru þó flestir fljótir að komast upp á lagið með að borða en einhverjir laumuðust til að ná í hnífapör. Af þessu má sjá hversu hversu gagnlegt og gefandi að kynnast menningu fjarlægra þjóða. 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica