Námskeið hjá Fjallaleiðsögumönnum
Nú eru Íslenskir fjallaleiðsögumenn að fara af stað með röð námskeiða í apríl, þeir hvetja heimamenn hér á Suð-Austurlandi til að sækja námskeiðið.
Þetta öfluga afþreyingarfyrirtæki hefur verið að auka við sína starfsemi jafnt þétt hér á svæðinu, þeir munu hefja starfsemina í Skaftafelli 1.apríl. Við viljum hvetja alla þá sem hafa áhuga á göngu, fjalla og jöklaleiðsögn eða hafa bara áhuga á að auka við þekkingu sína og öryggi til eigin fjallaferða segir Rósa Björk Halldórsdóttir framkvæmdarstjóri Ríki Vatnajökuls ehf sem eru samtök ferðaþjónustualila í sveitarfélaginu.. Það eru sífellt fleiri atvinnutækifæri sem að skapast hér á svæðinu í tengslum við fjallamennsku og jöklaferðir, við í Ríki Vatnajökuls erum að vinna ötullega að verkefni um fjallamenningu.
Umsóknir eða fyrirspurnir má senda á leifur@mountainguide.is , ivar@mountainguide.is eða á arnarj@mountainguide.is
.jpg)




Skrifa athugasemd