Mars
Endurvinnsla merki
Endurvinnsla merki

27.03.2009 Mars

Ágætu íbúar á Höfn og nágrenni

Tilkynning frá Sagaplast ehf

 

Að gefnu tilefni vill undirritaður f.h. Sagaplast ehf. leiðrétta þann alvarlega misskilning sem upp hefur komið, að þau endurvinnsluefni sem safnað er á Höfn og  í nágrenni séu urðuð, eftir að þau hafa verið flutt til Reykjavíkur. Þetta á ekki við nein rök að styðjast. Öll umrædd efni  eru bögguð í Reykjavík og send erlendis til frekari vinnslu. Þetta á við um dagblöð / tímarit, bylgjupappa, plastumbúðir, sléttan pappír ( fernur), baggaplast og margt fleira.

Sögusagnir um annað eru einfaldlega rangar. Okkur er annt um orðspor okkar og þykir okkur mjög miður að slíkar sögur komist á kreik og umhugsunavert hvaðan þær koma.

Það er einlæg ósk mín að það góða starf sem unnið hefur verið í sveitarfélaginu megi áfram dafna og vaxa því ennþá eru mörg skref óstigin.          

Með vinsemd og kveðju
Gunnar Þ. Garðarsson
Sagaplast ehf. Akureyri        

                                                              

  

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica