Ármann Smári Björnsson valinn í landsliðið
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari í fótbolta hefur valið þá Birki Bjarnason og Ármann Smára Björnsson, sem báðir leika í Noregi, í landsliðshópinn sem mætir Skotum í næstu viku. Þeir koma í stað þeirra Heiðars Helgusonar og Birkis Más Sævarssonar en þeir eru báðir meiddir og geta ekki spilað með landsliðinu gegn Skotum. Þá er einnig talið ólíklegt að Brynjar Björn Gunnarsson geti spilað með liðinu en hann er tæpur vegna meiðsla.
Birkir hefur átt fast sæti í byrjunarliði Viking en hann hefur ekki áður verið valinn í A-landslið Íslands. Ármann Smári leikur með Brann í Noregi en hefur ekkert komið við sögu í fyrstu tveimur leikjum liðsins í norsku úrvalsdeildinni.
Ármann Smári er fæddur og uppalinn hér á Höfn í Hornafirði, hann spilaði fótbolta með Sindra þar til að hann fór til Noregs 1999 og spilaði þar með Lilleström. Hann flutti til Reykjarvíkur árið 2000 þar sem hann hóf atvinnumennsku sína í fótbolta með knattspyrnufélaginu Val. Árið 2002 fór hann svo sem lánsmaður til Brann í Noregi en þegar hann kom til baka fór hann aftur í eitt ár til Vals. Haustið 2003 byrjaði hann svo að æfa með knattspyrnufélaginu FH í Hafnarfirði. í dag er hann búsettur í Noregi og starfar sem atvinnumaður með knattspyrnufélaginu Brann í Bergen.
Ármann Smári Björnsson er sonur þeirra Björns Þórs Ármannssonar og Ingu Kristínar Sveinbjörnsdóttur. Hann er trúlofaður Guðrúnu Lind Gísladóttur og eiga þau tvær dætur, þær Andreu Kristínu og Elínu Birnu.





Skrifa athugasemd