Mars
Skemmtiferðaskip á leið til hafnar
Skemmtiferðaskip á leið til hafnar
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

26.03.2009 Mars

Gott samstarf milli ferðamálaaðila á Höfn og Djúpavogi

 

Mikið samstarf hefur verið hjá ferðamálaaðilum á Hornafirði og Djúpavogi og meðal þess sem þeir hafa unnið að saman er að fá skemmtiferðaskip til að koma til Djúpavogs þar sem farþegar fara í land og síðan með rútum suður að Jökulsárlóni, uppá jökul og fleiri staði.

Einnig geta smærri skip lagt að á Höfn eins og í september síðastliðinn, von er á einu skemmtiferðaskipi á Höfn í júní.

Í sumar er von á þremur skemmtiferðaskipum til Djúpavogs, það fyrsta  kemur 1.júní með tæplega 400 farþega síðan koma tvö gríðarlega stór skip 16. og 18. ágúst með milli 1200 og 1300 farþega segir Rósa Björk Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls.

Við hér í Ríki Vatnajökuls og  Djúpavogsmenn höfum unnið ötullega að þessu verkefni í eitt og hálft ár og er árangurinn farinn að skila sér. Grundvöllur samstarfsins er að Djúpavogur á góða hafnaraðstöðu en farþegar sækjast eftir að komast í Jökulsárlón, á jökulinn og sjá þjóðgarðinn því er þessi samvinna mjög góður kostur fyrir báða staðina. Við Bryndís Reynisdóttir ferðamálafulltrúi á Djúpavogi höfum skipst á að fara á ferðasýningar erlendis til að kynna okkar svæði.

Rósa segir að hér hafi ýmislegt vantað í þessu verkefni þ.e. til að vera samkeppnishæf við aðrar hafnir. Hér vantar okkur fleiri leiðsögumenn og það hefur verið dýrt að fá svona margar rútur langt að. Því hefur verið unnið að því að styrkja grunngerð svæðisins. Í vetur fór Ríki Vatnajökuls og FAS  (Framhaldsskóli Austur- Skaftafellsýslu) af stað með stutt námskeið í svæðisleiðsögn, fyrst var kannað hvort áhugi væri á leiðsögumannanámi hér  og hvort hentaði betur heilsársskóli eða  námskeið og í ljós kom að 60 stunda námskeið varð fyrir valinu  og nú eru 12 manns að hafa lokið fyrsta námskeiðinu. Nú stefnum við á að fara af stað með ferðaþjónustumiðað enskunámskeið í samvinnu við Þekkingarnet Austurlands ÞNA á Höfn. Þessi námskeið henta vel öllum þeim sem á einhvern hátt koma að móttöku ferðamanna eða hvort sem er í afgreiðslu, ýmiskonar þjónustu eða leiðsögn.

Flugfélagið Ernir og Vatnajökull Travel hafa staðið sig vel í samvinnu um að búa til pakka og fljúga inn farþegum, þarna er einnig vettvangur sem að leiðsögumenn ættu að nýtast vel í framtíðinni.

Við erum því vonandi betur í stakk búin núna til að taka á móti ferðamönnum í framtíðinni segir Rósa að lokum.

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica