Mars
Hluti útskriftarhóps FAS vorið 2009
Hluti útskriftarhóps FAS vorið 2009

26.03.2009 Mars

Fréttir af væntanlegum útskriftarnemendum FAS

 

Töluverður hluti væntanlegra stúdenta ætlar að fara í útskriftarferð til Ibiza í lok maí. Þessi hópur hefur staðið fyrir nokkrum uppákomum í vetur til að safna í ferðasjóð. Fyrsta uppákoman var 12. febrúar en þá stóð hópurinn fyrir tónleikum í Nýheimum.  Fjölbreytt tónlistaratriði voru í boði og tókust tónleikarnir einkar vel. Næsti liður í fjáröflun var að selja auglýsingar í Útvarp FAS sem var starfrækt í opnu vikunni í lok febrúar. Fjölmörg fyrirtæki nýttu sér ódýra auglýsingaleið. Í byrjun mars stóð hópurinn fyrir bingói í Nýheimum. Það var mjög vel sótt enda margir góðir vinningar í boði. Um síðustu helgi fór svo af stað söfnun á frjálsum framlögum. Ef viðkomandi styrkir hópinn um meira en 1500 krónur fær hann geisladisk sem að Elías, Frikki og Nanna hafa unnið að. Ef einhverjir vilja eignast þennan disk má hafa samband við Nönnu í síma 8487000. Núna er að fara af stað sala á skólabolum og vonast hópurinn til að því framtaki verði vel tekið.
Þegar allt er tekið saman er ljóst að stór hluti bæjarbúa hefur styrkt krakkana á einn eða annan hátt. Fyrir það eru þeir afar þakklátir og hlakka mikið til ferðarinnar. Það er greinilegt að hér er vaskur hópur á ferð sem hefur auðgað félagslíf nemenda og menningu okkar undanfarið. 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica