Mars
Jón Sölvi og íshumarinn
Jón Sölvi og íshumarinn
Mynd 1 af 2
1 2

25.03.2009 Mars

Hollt gott og orkuríkt

"Matargerðin þarna er algjör snilld og heillaðist ég gjörsamlega af henni"

 

Hlaðborðin á Smyrlabjörgum eru löngu orðin landsfræg fyrir það hornfirska góðgæti sem þar er á boðstólum og þann 4.apríl nk. verða þau Laufey og Jón Sölvi kokkur með hlaðborð sem er að nokkru frábrugðið þessum venjulegu og nú er það hollustan og næringargildið sem er í fyrirrúmi. Jón Sölvi segist hafa mikinn áhuga á hollri matargerð, mat með minni fitu og öðrum óhollum efnum og fá þess í stað sem mesta orku og næringargildi úr fæðunni. Hann  fór því til Hákonar í Gló sem rekur veitingastað með alveg frábæran hollustumat og spurði hvort og mætti vinna hjá honum í 4-5 daga og  kynnast matargerðinni hjá honum, var það auðsótt mál. 

Matargerðin þarna er algjör snilld og heillaðist ég gjörsamlega af henni segir Jón Sölvi, þetta er matur sem hentar öllum á hvaða aldri sem er.  Til að gefa smá lýsingu á matreiðslunni er t.d lítill sem enginn sykur  notaður, lítið salt og einungis krydd sem ekki innihalda MSG, mikið notað af  íslensku bankabyggi, kjúklingurinn er gufusteiktur og eins fiskurinn. Þetta er áhugaverður og einstaklega skemmtilegur  matur fyrir alla  og  á hlaðborðinu okkar gefst tækifæri til að sanna það fyrir gestum okkar.

Á hlaðborðinu geta þeir sem eingöngu eru á jurtafæðu eða borða baunir alla daga  valið um margskonar grænmeti hrátt eða soðið og hrámetisætur finna þarna mat við sitt hæfi. Lambasteikin, kjúklingur og  bleikja  og aðrir hornfirskir afurðir verða matreiddir með hollustuna, næringargildið og  bragðgæðin í fyrirrúmi og  þegar þau Laufey og Jón Sölvi eru við matargerðina er öruggt að útkoman verður frábær matur og að þessu sinni enn hollari en áður.

 

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica