Skíðahjálmur borgar sig
Frétt með forvarnargildi
Betur fór en á horfðist fyrir Önnu Birnu Elvarsdóttur á Höfn sem var á skíðaferðalagi með foreldrum sínum í Oddsskarði um helgina þegar hún datt á skíðum og rann á andlitinu eftir harðfenni. Hún fékk höfuðhögg og missti meðvitund um stund og var alblóðug í andlitinu þegar að var komið en óbrotin. Elínborg móðir hennar var í skíðalyftunni og sá að eitthvað hafði komið fyrir í brekkunni og þóttist sjá að þar hefði eitthvað hent dóttur hennar svo hún flýtti sér til hennar. Þegar hún kom á slysstaðinn nokkrum mínútum síðar var fólk að hlú að telpunni sem þá var að komast til meðvitundar. Farið var með Önnu Birnu í sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Norðfirði þar sem vel var hlúð að henni og hún rannsökuð einkum með tilliti til höfuðhöggsins.
Við fengum að fara heim í gær mánudag og þetta virðist allt vera í lagi segir Elínborg, hún hefur sloppið glóðaraugu og sár í andlitinu þar sem skinnið skrapaðist af á hörðum snjónum og hún á að taka því rólega þessa viku. Anna Birna man ekkert eftir að hafa dottið, man síðast að mamma hennar harðbannaði henni að fara í stóru brekkuna þar sem hún væri ekki með neinn hjálm og snjórinn svona harður hún færi bara í barnabrekkuna sem hún gerði. Hún er ákveðin í að fara sem fyrst á skíði aftur en þá ætlar hún að vera með skíðahjálm.
Elínborg telur að reiðhjólahjálmurinn sem dóttir hennar hefur stundum notað hefði trúlega komið að einhverju gagni þarna og mun meiri vörn væri að vera með skíðahjálm.
Myndirnar af Önnu Birnu eru birtar með leyfi foreldra og til forvarnar.





Skrifa athugasemd