Mars
Lena, Ester, Viktoría og Ísar
Lena, Ester, Viktoría og Ísar
Mynd 1 af 2
1 2

20.03.2009 Mars

Fyrsti útimarkaðurinn á árinu

Það er vor í lofti hér í Hornafirðinum í dag, logn og blessuð blíða.

Fugla-glöggir menn sáu lóuna í dag og heyrðu í henni svo það er enginn vafi að hún er komin. Svo var líka fyrsti útimarkaðurinn á árinu í dag.

Krakkarnir sem komu sér fyrir á Ránarslóðinni með söluvarning sinn sögðu að salan gengi vel og lítið væri eftir. Ekki væri alveg ákveðið hvað gert yrði við ágóðann kannski fengi Rauði krossinn eitthvað en víst væri að góð málefni nytu hans.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica