Stefnum ótrauðir á 9. apríl
Nú er unnið hörðum höndum við að ljúka öllum þeim verkþáttum sem til þarf svo að hægt verði að opna nýju sundlaugina 9.apríl. Við stefnum ótrauðir á þá tímasetningu segir Haukur Ingi Einarsson, það á svo eftir að ráðast hvort hægt verður að standa við þessa áætlun nú ef allt um þrýtur gefum við út tilkynningu um það. Það er nú svo í öllum svona framkvæmdum að eitthvað óvænt og óviðráðanlegt getur tafið og sett góðar áætlanir úr skorðum svo seinkun yrði um einhverja daga.
Píparinn er núna að keppast við að loka laugarkerfinu og síðan þarf að prufukeyra það í viku áður en fólki er hleypt í laugina. Aðalhöfuðverkurinn er þó sá að sérfræðingurinn sem kemur að sunnan til að tengja saman rafmagn, dælukerfi og hugbúnað er að vinna að sama verkefni í annarri laug en vonandi lýkur því nógu snemma. Haukur Ingi segir að allur þessi búnaður í sundlauginni sé svo fullkominn að nánast öllu sundlaugarkerfinu sé stjórnað í tölvunni.
Annars er allt hér að ganga upp og frágangi að ljúka og eitt er víst að þetta verður glæsileg aðstaða sem Hornfirðingar verða stoltir af




Skrifa athugasemd