Mars
Strandganga 2008-2009
Strandganga 2008-2009
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

19.03.2009 Mars

Uppskeruhátíð hjá Ferðafélaginu

Uppskeruhátíð og úrdráttur úr Lukkuleik

 

Nú þegar strandgöngunni er lokið og dregið hefur verið úr Lukkuleiknum er mál að rifja  aðeins upp tildrög og árangur í þessu strandævintýri. Okkur langaði  að brydda upp á einhverri nýjung og kanna hvort áhugi væri fyrir skipulögðum vetrargöngum hér ásamt því að athuga hvort þetta væri hægt. Byrjuðum við á því að fá okkur kort af svæðinu, mæla það hátt og látt með reglustriku, skipta svo leiðinni frá Horni að Hornarfjarðarfljótum upp í 7 einingar, auglýsa ferðir og arka af stað. Sennilega hefur reglustrikumælingin ásamt stærðfræðiþekkingu okkar, ekki verið nógu góð, ásamt því að ýmsar torfærur urðu á leið okkar. Seinna kom í ljós að sumar leiðir voru of langar og þurfti því að fara 2 aukaferðir, aðrar leiðir voru mjög blautar og einnig var mikið um skurði, kíla og girðingar og svo vantaði frost til að geta gengið um Hrísey sem er hluti leiðarinnar.  Allt gekk þetta upp og fór fram úr björtustu vonum . Alls tóku um 70 manns þátt í ferðunum og þökkum við þeim kærlega fyrir þátttökuna.

Ýmsar uppákomur voru í ferðunum t.d. hittum við jólasveina, sáum Leppalúða húka undir barði nagandi hangikjötslæri, smökkuðum heimaræktuð vínber frá Brynju í Grænahrauni, drukkum vígt vatn úr Gvendarbrunni við Þinganes, fengum kakó og átum smákökur langt fram á þorra, smökkuðum þorramat og hlustuðum á fræðsluefni frá leiðsögufólki.

Fyrsta ferðin var farin 25. október og sú síðasta 28. febrúar.

Sunnudaginn 8. mars var svo uppskeruhátíð með kaffi og glæsilegri strandköku, ásamt því að dregin voru 10 nöfn úr lukkupottinum sem öll  hlutu veglega vinninga. Í boði voru: tvær helgarferðir frá F.Í fyrir 2,  tvær dagsferðir frá F.Í fyrir 2, ein ferð frá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum í ísklifur, gjafabréf frá Kaffihorninu og Olís/Erlingssen, sundkort og helgarferð fyrir eina fjölskyldu í jeppa og gönguferð Ferðafélags Hornafjarðar. Einnig voru veitt hvatningarverðlaun en þau hlaut Steindór Ólafsson 6 ára en hann gekk allar leiðirnar nema eina og var ávallt í fararbroddi. Einnig var veitt viðurkenning fyrir þátttöku en aðeins einn hafði mætt í allar ferðir en það var Hildur Steindórsdóttir og fékk hún  kvöldsiglingu um Skarðsfjörðinn fyrir 4 og auk þess fór Ragna Pétursdóttir í allar ferðirnar. Þökkum við stuðningsaðilum kærlega fyrir veglega vinninga og annan veittan stuðning.  Að lokum þar sem sumarstarfið hjá ferðafélaginu er í þann mund að hefjast viljum við minna á jeppaferðina á Borgarhafnarfjöru sunnudaginn 22. mars. Spennandi dagskrá framundan sem verður nánar auglýst á SkjáVarpinu.

Bestu kveðjur frá strandgellunum hjá Ferðanefndini: Rögnu, Möggu og Björgu.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica