Komnir framhjá sjóræningjasvæðinu
Skinney SF-20 á heimleið
Skinney SF-20 sem er á heimleið frá Taiwan nær væntanlega að Súesskurði í kvöld.
Sverrir Aðalsteinsson hjá Skinney Þinganesi sagði að ferð Skinneyjar gengi alveg ljómandi vel og er skipið komið framhjá sjóræningjaslóðum og ekki orðið neinna sjóræningja vart. Að sögn Sverris eru skipverjar alsælir með nýja skipið og sjóhæfni þess eftir að hafa fengið töluverðan mótvind og öldugang á Rauðahafinu. Skipstjóri er Margeir Guðmundsson og siglingaskipstjóri Jón Eyjólfsson sem m.a. hefur verið skipsstjóri á Herjólfi.
Ekki er komin tímasetning á heimkomu skipsins en áætlað var að siglingin tæki 6-7 vikur en það lagði af stað frá Kaohsing í Taiwan 10.febrúar





Skrifa athugasemd