Mars
Skólastofur fluttar á Höfn
Í gær var annað kennsluhúsið af tveim sem flutt er frá Nesjaskóla á Höfn sett á flutningavagn og flutt að Hafnarskóla og gekk flutningur þess eins og í sögu ,,eins og í ótrúlegustu lygasögu´´ sagði Olgeir Jóhannesson kranastjórnandi. Ferðin út á Höfn tók um 30 mínútur og var húsið sett til hliðar við grunninn sem því er ætlaður þar sem seinna húsið, sem flutt verður í dag, þarf að komast á sinn stað fyrst. Hvort hús er 14 tonn.
Lögreglan sá um að leið húsflutningabílsins milli staða væri greiðfær.




Skrifa athugasemd